Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, var úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd KSÍ eftir áflogin í leiknum gegn Fram á dögunum. Ekki eru allir sáttir við þetta.
Það stefndi í 0-1 sigur Framara þegar Blikar fengu afar umdeilda vítaspyrnu undir lokin. Höskuldur fór á punktinn og skoraði. Fyrirliðinn geðþekki vildi ólmur ná í boltann úr markinu strax og við það hófust mikil læti. Veittist hann að Kennie Chopart og Viktori Frey markverði Fram.
Kyle McLagan brást við með því að taka hressilega á Höskuldi og fór það svo að lokum að báðir fengu þeir rautt spjald.
Aganefndin úrskurðaði að Höskuldur skyldi sæta tveggja leikja banni og Kyle eins leiks banni. Þetta var til umræðu í Dr. Football.
„Það er fyrir mér algjörlega óskiljanlegt. Ég var sammála Sigurði í síðasta þætti um að það hefði verið hægt að gefa þeim gul spjöld og spila áfram. Það voru engar kýlingar, þetta voru stimpingar og ýtingar,“ sagði Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður RÚV, þar.
Annar spekingur sem er flestum knattspyrnuáhugamönnum kunnur, Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni, tjáði sig þá um málið á X.
„2ja leikja bann á Höskuld. Þessi aganefnd elskar að fá sér á þriðjudögum,“ skrifaði Kristján.
2ja leikja bann á Höskuld. Þessi aganefnd elskar að fá sér á þriðjudögum. 🍷🍷🍷🍷🍷
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) June 24, 2025