Steven Caulker er búinn að semja við Stjörnuna, en félagið staðfestir þetta.
Um er að ræða 33 ára gamlan reynslubolta sem hefur verið á mála hjá Tottenham, Cardiff, QPR og einnig Liverpool um stutt skeið.
Skiptin hafa lengi verið í umræðunni eftir að miðvörðurinn sást á leik með Stjörnunni hér á landi. Eru þau nú staðfest.
Félagaskiptaglugginn hér heima opnar um miðjan júlí og má Caulker spila með Stjörnunni frá þeim tíma.
Stjarnan situr í fjórða sæti Bestu deildarinnar sem stendur.