fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
433Sport

Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sex ár en börnunum var alveg sama – ,,Spenntari fyrir því að ég fái að hitta hann“

Victor Pálsson
Mánudaginn 2. júní 2025 20:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spánverjinn Isco hefur verið valinn í spænska landsliðið á ný en hann snýr aftur eftir sex ára fjarveru.

Isco var frábær fyrir Real Betis í vetur og var til að mynda valinn besti leikmaður Sambandsdeildarinnar.

Hinn 33 ára gamli Isco var verðlaunaður með sæti í landsliðinu sem spilar gegn Frökkum í Þjóðadeildinni.

Isco segir að börnin sín séu spenntari fyrir því að sjá pabba sinn spila með Lamine Yamal frekar en að hann sé sjálfur mættur í hópinn á ný.

,,Yngri börnin mín hafa aldrei séð mig spila fyrir Spán en minn elsti hefur náð því,“ sagði Isco.

,,Þau eru spenntari fyrir því að ég fái að hitta Lamine frekar en að ég sé mættur aftur í landsliðshópinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Gerir átta ára samning við Chelsea

Gerir átta ára samning við Chelsea
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Staðfest að Sancho snúi aftur – Þakklátur fyrir tækifærið

Staðfest að Sancho snúi aftur – Þakklátur fyrir tækifærið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fanndís um endurkomuna: ,,Auðvitað kitlar það alveg“

Fanndís um endurkomuna: ,,Auðvitað kitlar það alveg“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ísland endar riðlakeppnina án sigurs eftir tap gegn Frökkum

Ísland endar riðlakeppnina án sigurs eftir tap gegn Frökkum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Wirtz sagður heimta númer sem er í eigu annars leikmanns Liverpool

Wirtz sagður heimta númer sem er í eigu annars leikmanns Liverpool
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Staðfesta kaup á Nökkva eftir vel heppnaða dvöl á láni

Staðfesta kaup á Nökkva eftir vel heppnaða dvöl á láni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eitt stærsta félag í Evrópu hefur áhuga á að kaupa Antony

Eitt stærsta félag í Evrópu hefur áhuga á að kaupa Antony