Fyrrum aðstoðarmaður Jurgen Klopp er sagður vera á leið til Manchester City og mun þar aðstoða Pep Guardiola.
Frá þessu er greint í dag en blaðamaðurinn Fabrizio Romano er á meðal þeirra sem greina frá.
Um er að ræða Pep Lijnders sem var síðast aðalþjálfari RB Salzburg í Austurríki en stoppaði stutt í nokkra mánuði.
Lijnders kom fyrst til Liverpool árið 2014 og vann með Brendan Rodgers en hélt áfrram eftir komu Klopp áður en hann fór til Hollands og sneri svo aftur.
Hann ákvað að kveðja Liverpool sumarið 2024 og elti þar með Klopp sem hætti með félagið.