Arsenal hefur ákveðið að losa sig við fyrrum undrabarnið Marquinhos sem kom til félagsins fyrir þremur árum.
Um er að ræða vængmanninn Marquinhos sem byrjaði ungur að aldri að spila með Sao Paulo í Brasilíu.
Marquinhos fékk fá tækifæri hjá Arsenal og spilaði aðeins sex leiki og skoraði í þeim eitt mark.
Cruzeiro í Brasilíu hefur keypt strákinn sem er enn aðeins 22 ára gamall og var í láni hjá Cruzeiro 2025.
Hann hefur fjórum sinnum verið sendur annað á lán og einnig til Norwich, Nantes og Fluminense.