Jadon Sancho virðist hafa opinberað ástarsamband sitt við söngkonuna Saweetie í vikunni.
Sancho var að fagna sigri Chelsea í Sambandsdeildinni og mætti með símann sinn inn á völlinn til að taka myndir.
Framan á síma hans var svo mynd af Saweetie sem glöggir stuðningsmenn Chelsea tóku eftir.
Saweetie er vinsæll rappari í Bandaríkjunum en hún mætti á leik hjá Chelsea í vetur þar sem Sancho sást faðma hana.
Samband þeirra virðist hafa þróast en Sancho er í eigu Manchester United en er á láni hjá Chelsea.