Umboðsmaður Bruno Fernandes var myndaður í Sádí Arabíu í gær þar sem hann er sagður hafa fundað með forráðamönnum Al-Hilal.
Athletic segir að Al-Hilal sé tilbúið að bjóða 80 milljónir punda í Bruno.
Athletic segir að Bruno hafi sjálfur ekki tekið ákvörðun um hvað hann vilji gera.
United er ekki spennt fyrir því að selja sinn besta mann en 80-100 milljóna punda tilboð gæti breytt þeirri skoðun félagsins.
Bruno myndi hækka verulega í launum og tryggja sig og afkomendur sína fjárhagslega ævilangt.