Wrexham gerir sér vonir um að fá leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni í sínar raðir fyrir næsta tímabil.
Þetta staðfestir Phil Parkinson, stjóri Wrexham, sem er líklega ríkasta félagið í neðri deildum Englands og tryggði sér sæti í næst efstu deild fyrr á árinu.
Félagið er í eigu Hollywood stjarnanna Ryan Reynolds og Rob McElhenney sem hafa séð félagið fara upp um þrjár deildir á stuttum tíma.
Parkinson staðfestir að metnaðurinn sé mikill og að Wrexham sé að horfa á leikmenn í ensku úrvalsdeildinni og þá aðallega að semja við þá aðila á lánssamningi.
Parkinson segir að úrvalsdeildarfélög séu ekki mikið fyrir það að senda leikmenn annað án þess að fá loforð um það að þeir fái að spila reglulega með sínu ‘nýja’ félagi.
Þrátt fyrir að vera nýliðar í næst efstu deild þá stefnir Wrexham að því að komast upp og mun styrkja hópinn verulega fyrir komandi átök næsta vetur.