fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
433Sport

Liverpool skellir háum verðmiða á Kelleher

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 30. maí 2025 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brentford er komið á fullt í samtalið við Liverpool um kaup á Caoimhin Kelleher markverði liðsins.

Kelleher vill fara og vera fyrsti kostur í markið en Mark Flekken er á förum frá Brentford.

Athletic segir að Liverpool vilji fá 20 milljónir punda fyrir Kelleher í sumar.

Kelleher er landsliðsmaður frá Írlandi og hann vill fá aukinn spiltíma sem hann fær ekki á Anfield.

Hjá Brentford er Hákon Rafn Valdimarsson sem þarf þá að keppa við Kelleher um stöðuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt