Það er lítil krísa í Kópavogi eftir tvo tapleiki í röð og er liðið nú farið að elta Víkinga sem er á toppnum en liðin mætast í næstu umferð.
Þar geta Víkingar náð sjö stiga forskoti á Blikana en þessi lið hafa verið að berjast á toppnum síðustu ár. Blikar töpuðu sannfærandi gegn ÍA á heimavelli í gær.
„Varnarleikur liðsins er mjög slakur, það er áhyggjuefni. Menn að klikka þarna, Viktor Örn Margeirsson með annan hauskúpuleikinn í röð. Hann var jafnvel verri en gegn FH, maður veltir fyrir því hvað sé að þar. Ásgeir Helgi er tekinn af velli í hálfleik, hann átti erfiðan fyrri hálfleik,“ sagði Valur Gunnarsson í Innkastinu á Fótbolta.net.
„Mér fannst þetta sanngjarn sigur ÍA, þeir „bossuðu“ þá.“
Valur telur Blikana alltof lina og að margir leikmenn liðsins skuldi frammistöður í sumar.
„Þetta Blikalið hefur verið soft á löngum köflum í sumar, mér finnst eins og þeir séu ekki í sama standi og áður. Ef einhver er búinn að mastera hvernig á að koma liði í form eru það Blikarnir, ákefðin er hins vegar svo lítil.
„Það er enginn stjórnun frá öftustu línu. Mér fannst viðtalið við Halldór Árnason skrýtið, honum fannst þeir frábærir. ÍA gat skorað svona sjö mörk. Hvar er Óli Valur hjá Blikum? Byrjar þetta af krafti í sumar en hann hefur koðnað niður, Valgeir Valgeirs kemur nýr inn og á að taka hlutverk. Það er lítið hægt að tala um þá, Anton Logi og spilið í kringum hann er of hægt. Hann er með auga fyrir spila og sér laus svæði en hann verður að gera meira fram á við.“