Jeremie Frimpong er genginn í raðir Englandsmeistara Liverpool. Tíðindin hafa legið í loftinu og eru nú staðfest.
Hinn 24 ára gamli Frimpong er sókndjarfur hægri bakvörður sem kemur frá Bayer Leverkusen. Liverpool greiðir tæpar 30 milljónir punda fyrir hann.
Frimpong var frábær í liði Xabi Alonso hjá Leverkusen, sem varð til að mynda Þýskalandsmeistari fyrir ári síðan.
Þess má geta að Frimpong var í yngri liðum Manchester City á árum áður og hefur hann einnig verið á mála hjá skoska stórliðinu Celtic.
"I’m going to give my all, my energy, my work-rate and hopefully we can win together, we celebrate together, get everything together."
Head to All Red video to hear from Jeremie Frimpong after signing for the Reds 🗣️
— Liverpool FC (@LFC) May 30, 2025