Forráðamenn Chelsea virðast ætla að bæta hressilega við sóknarleik sinn í sumar en Liam Delap er að koma til félagsins.
Delap hafnaði Manchester United og valdi Chelsea en hann kemur frá Ipswich fyrir 30 milljónir punda.
Forráðamenn Chelsea eru ekki hættir þar og segir í fréttum í Þýskalandi að félagið sé enn á eftir Hugo Ekitike framherja Frankfurt.
Ekitike er öflugur franskur sóknarmaður sem Chelsea vill fá en Frankfurt fer fram á 84 milljónir punda fyrir hann.
Í fréttum í Þýskalandi segir að kaup Chelsea á Delap hafi ekki áhrif á áhuga félagsins á Ekitike.
Ef Ekitike kemur gæti svo farið að Chelsea reyni að losa sig við Nicolas Jackson framherja félagsins.