Forráðamenn FC Bayern eru sárir og svekktir yfir því að Florian Wirtz hafi valið Liverpool frekar en þá.
Miðjumaður Leverkusen er á leið til Liverpool en forráðamenn Bayern eru vanir því að fá bestu þýsku bitana.
Þetta er því erfiður biti að kyngja en í dag kemur fram að félagið sé farið að horfa til Rafael Leao hjá AC Milan.
Landsliðsmaður Portúgals er með klásúlu sem gerir honum kleift að fara fyrir 147 milljónir punda.
Forráðamenn Milan hafa komist að því að enginn mun borga slíka upphæð og hafa sett 109 milljóna punda verða á Leao.
Sagt er að Bayern skoði það alvarlega að borga þá summu en Leao er 25 ára gamall og er öflugur sóknarmaður.