Chelsea er á fullu að reyna að sannfæra Jadon Sancho um að vera áfram en hann þarf að lækka laun sín.
Sancho er á láni hjá Chelsea frá Manchester United en Chelsea getur keypt hann á 25 milljónir punda í sumar.
Sancho hefur átt ágæta spretti hjá Chelsea og vill félagið halda honum.
Sancho er með vel yfir 200 þúsund pund á viku hjá United en hann fær þau laun ekki hjá Chelsea.
Félagið er hins vegar tilbúið að bjóða honum langan samning á lægri kjörum.