fbpx
Föstudagur 30.maí 2025
433Sport

Var sagt að grjóthalda kjafti eftir þessi umdeildu ummæli – ,,Ég hafði engan rétt á því að tala svona“

Victor Pálsson
Fimmtudaginn 29. maí 2025 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Thierry Henry, einn besti sóknarmaður allra tíma, fékk alvöru lestur frá fyrrum liðsfélaga sínum Xavi er þeir spiluðu saman hjá Barcelona fyrir þónokkrum árum síðan.

Henry var nýkominn til Barcelona frá Arsenal á Englandi og gerði í raun grín að ‘mottói’ Barcelona sem ber heitið ‘Mes que un club’ sem er tilvitnun í að Barcelona sé meira en bara félag innan vallar.

Henry ákvað að grínast með þetta ‘mottó’ stuttu eftir komu til félagsins en hann ræddi þar við samherja sinn Samuel Eto’o.

Xavi, einn besti leikmaður í sögu Barcelona, heyrði það sem Henry hafði að segja og var svo sannarlega ekki hrifinn og komst Henry fljótt að því.

,,Ég var að ræða þetta mál við Samuel Eto’o og ég sagði einfaldlega: ‘Més que un club? Rífið ykkur í gang!“ sagði Henry.

,,Xavi birtist svo fyrir aftan mig og spurði: ‘Hvað sagðirðu?’ Hann sagði mér að halda kjafti og að einbeita mér að minni eigin vinnu, ég hafði engan rétt á að tala svona um hans félag.

,,Á þessum tíma áttaði ég mig ekki á því hvað ég væri að segja, ég var ekki búinn að kynnast menningunni eða félaginu. Í dag veit ég vel hvað þetta þýðir, ég tapaði og vann með þessu félagi.“

,,Þú ert fljótur að læra þessa hluti þegar þú ert hluti af Barcelona, fólk í kringum félagið er mjög stolt af því sem það tilheyrir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Krísuástand í Kópavogi – Valur tekur Viktor Örn á beinið og segir þá flesta of lina

Krísuástand í Kópavogi – Valur tekur Viktor Örn á beinið og segir þá flesta of lina
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Umboðsmaður Bruno fundaði í Sádí – Hann er sagður hugsa málið

Umboðsmaður Bruno fundaði í Sádí – Hann er sagður hugsa málið
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stefna á að ná í leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni

Stefna á að ná í leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Liverpool og Tottenham sagður vera á leið í Stjörnuna

Fyrrum leikmaður Liverpool og Tottenham sagður vera á leið í Stjörnuna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Besta deildin: Stjarnan fór illa með KR

Besta deildin: Stjarnan fór illa með KR
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Besta deildin: Flottur sigur Víkinga á Ísafirði

Besta deildin: Flottur sigur Víkinga á Ísafirði
433Sport
Í gær

Miður sín fyrir úrslitaleikinn í gær – ,,Auðvitað var það hrikalegt“

Miður sín fyrir úrslitaleikinn í gær – ,,Auðvitað var það hrikalegt“
433Sport
Í gær

Ummæli Amorim vekja mikla athygli: ,,Kannski er það eitthvað sem við þurfum í öllum leikjum“

Ummæli Amorim vekja mikla athygli: ,,Kannski er það eitthvað sem við þurfum í öllum leikjum“
433Sport
Í gær

Goðsögnin rekin eftir aðeins 15 leiki

Goðsögnin rekin eftir aðeins 15 leiki