Mykhailo Mudryk, leikmaður Chelsea, var sjáanlegur í Póllandi í gær er hans menn spiluðu við Real Betis í Sambandsdeildinni.
Úrslitaleikurinn sjálfur var á dagskrá en Mudryk má ekki spila þar sem hann er undir rannsókn UEFA.
Úkraínumaðurinn er sakaður um að hafa tekið inn ólögleg efni fyrr á tímabilinu og hefur ekkert spilað með Chelsea síðustu mánuði.
Hann var þó mættur á leikinn í gær en það er þónokkuð síðan stuðningsmenn Chelsea sáu þennan ágæta dreng mæta á stóra sviðið.
Mudryk spilaði með Chelsea í Sambandsdeildinni fyrr á tímabilinu og mun þess vegna fá medalíu eftir 4-1 sigur liðsins gegn Betis.
Mudryk hefur sjálfur harðneitað að hafa tekið inn lyf sem ber nafnið Meldonium en hann hefur ekkert æft með félaginu síðan í desember.