fbpx
Þriðjudagur 23.desember 2025
433Sport

Vegleg ráðstefna í Laugardalnum – Þorsteinn fer meðal annars yfir EM

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 22. desember 2025 17:00

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laugardaginn 24. janúar fer fram vegleg þjálfararáðstefna í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli.

Dagskrá

09:00-11:00 Hugmyndafræði FC Nordsjælland – Kasper Kurland, yfirþjálfari kvennastarfs FC Nordsjælland í Danmörku
FCN er þekkt fyrir frábært uppeldisstarf og hefur til fjölda ára verið með einn af yngstu leikmannahópum karla liða í Evrópu. Kvennalið félagsins hefur á skömmum tíma þróast í eitt af bestu liðum Danmerkur. Kasper er einn af höfundum hugmyndafræði félagsins en framkvæmd hennar er eins hjá kvenna og karlaliðinu. Hann mun fjalla um hugmyndafræðina, Right to Dream akademíu félagsins og sýna videó frá æfingum og leikjum.

11:00-11:30 SKORA – Stúlkur, Knattspyrna og Rannsókn á Afkastagetu – Sigurður Skúli Benediktsson, doktorsnemi við Háskóla Íslands.
Erindið Skúla byggir á niðurstöðum úr íslensku SKORA-rannsókninni á 12 ára knattspyrnustúlkum. Þar sem samband þroska, líkamssamsetningar og líkamlegrar frammistöðu við getuskiptingu þjálfara er skoðað. Rannsóknin varpar ljósi á hvernig þroski og líkamssamsetning tengjast afkastagetu og hvernig þessir þættir skýra mun í getuflokkun milli leikmanna. Jafnframt verður fjallað um hvers vegna skipulögð eftirfylgd með þroska er mikilvæg fyrir markvissa hæfileikamótun og sem forvörn gegn meiðslum.

11:30-12:00 Ættu stelpur að æfa/spila meira með strákum? – Ólafur Kristjánsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna
Hvernig er staðan á Íslandi, hvað er að gerast annars staðar í Evrópu?

12:00-12.30 Hádegismatur

12:30-13:30 Álag og þreyta hjá íslenska kvennalandsliðinu á EM 2025. Samanburður við aðrar þjóðir, yngri landslið Íslands og lið í Bestu deild kvenna – Lára Hafliðadóttir, Vísindasvið KSÍ (Head of fitness) og doktorsnemi í Háskólanum í Reykjavík.
Farið verður yfir gögn (GPS, CMJ og readiness) frá íslenska kvennalandsliðinu á EM ásamt samanburði á hlaupatölum við aðrar þjóðir á mótinu. Þá verður einnig rýnt í gögn frá yngri landsliðum Íslands og liðum úr Bestu deild kvenna.

13:30-15:00 EM 2025, Uppgjör – Þorsteinn H. Halldórsson, aðalþjálfari A-landslið kvenna
Farið yfir allan undirbúning fyrir leik, i leiknum, hálfleik og eftir leik á EM og allt sem honum tengist. Skipulag þjálfara, skipting verkefna.

Ráðstefnugjald er 7500kr og er léttur hádegisverður innifalin.

Ráðstefnan veitir þátttakendum með KSÍ/UEFA þjálfararéttindi 9 endurmenntunarstig. Ekki verður streymt frá ráðstefnunni og hún verður ekki tekin upp.

Skráning á ráðstefnuna er hér

Þátttakendur sem greiða sjálfir ráðstefnugjald eru vinsamlegast beðnir um að millifæra á eftirfarandi reikning – 101-26-700400, kt. 700169-3679

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Spáir ekki í uppþoti Salah á dögunum

Spáir ekki í uppþoti Salah á dögunum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Högg í maga Ronaldo og félaga

Högg í maga Ronaldo og félaga
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Rooney segir leikmann Arsenal eiga að verða næsta fyrirliða enska landsliðsins

Rooney segir leikmann Arsenal eiga að verða næsta fyrirliða enska landsliðsins
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Viðræður ganga vel en United gæti sagt nei vegna þessa

Viðræður ganga vel en United gæti sagt nei vegna þessa
433Sport
Í gær

Staðfesta ráðningu á Túfa í Svíþjóð

Staðfesta ráðningu á Túfa í Svíþjóð
433Sport
Í gær

Amorim enn og aftur spurður út í ósátta manninn

Amorim enn og aftur spurður út í ósátta manninn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opinberar hvað Salah sagði í klefanum eftir viðtalið umdeilda – „Það sýnir hvers konar maður hann er“

Opinberar hvað Salah sagði í klefanum eftir viðtalið umdeilda – „Það sýnir hvers konar maður hann er“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola hafði ekki þolinmæði í spurningu fréttamanns

Guardiola hafði ekki þolinmæði í spurningu fréttamanns