
Aston Villa horfir til markvarðar Barcelona, Marc-Andre ter Stegen sem mögulegan arftaka Emiliano Martinez, en framtíð Argentínumannsins hjá félaginu er óljós.
Martinez hefur verið lykilmaður í uppgangi Villa undanfarin ár og heimsmeistaratitillinn með Argentínu hefur aðeins aukið áhuga annarra stórliða á honum. Ef hann fer þurfa forráðamenn Villa að bregðast hratt við og telja sig geta tryggt sér markvörð úr efstu hillu í Ter Stegen.
Þjóðverjinn hefur átt farsælan feril hjá Barcelona í rúman áratug, unnið marga titla og Meistaradeildina, en hefur nú misst stöðu sína sem aðalmarkvörður bæði hjá félaginu og þýska landsliðinu. Samkvæmt Mundo Deportivo eru Villa áhugasamir um að nýta sér stöðuna.
Barcelona glímir við fjárhagsvanda og er félagið sagt tilbúið að selja til að létta launabyrði. Ter Stegen myndi fá fast sæti í byrjunarliðinu á Villa Park og tækifæri til að spila bæði í ensku úrvalsdeildinni og Evrópukeppni.
Martinez er þó samningsbundinn til 2029 og ekki víst að hann fari alveg strax.