fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
433Sport

KSÍ bregst við umræðu um umfang og bendir á áhugaverða niðurstöðu rannsóknar UEFA

433
Mánudaginn 22. desember 2025 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KSÍ birti á vef sínum áhugaverða niðurstöðu úr mannauðsrannsókn sem UEFA framkvæmdi fyrir síðasta ár. Þar kemur fram að aðeins tvö knattspyrnusambönd í Evrópu séu með færri starfsmenn innan sinna raða en KSÍ.

Af vef KSÍ
Reglulega kviknar umræða innan knattspyrnuhreyfingarinnar um umfang starfsemi KSÍ – og þá helst um verkefni skrifstofu og fjölda starfsfólks. Vegna þessa vill KSÍ vekja athygli á því að í mannauðsrannsókn sem UEFA framkvæmdi árið 2024 (UEFA Human Resources Benchmarking Report) kom m.a. fram að KSÍ væri í 53. sæti af öllum 55 knattspyrnusamböndum innan UEFA þegar talinn væri fjöldi starfsfólks – sem sagt, knattspyrnusambönd aðeins tveggja aðildarlanda UEFA eru með færri starfsmenn en KSÍ.

Á skrifstofu sambandsins og Laugardalsvelli eru nú (í desember 2025) alls 37,8 stöðugildi.

Á skrifstofunni, að meðtöldum formanni KSÍ og landsliðsþjálfurum, eru 31,8 föst stöðugildi (þar af landsliðsþjálfarar 9,6 stöðugildi).
Þessu til viðbótar eru 4 stöðugildi sem eru fjármögnuð með styrkjum frá UEFA og FIFA – eitt tímabundið stöðugildi í innleiðingu á nýju mótakerfi (styrkur á meðan á innleiðingu stendur) og 3 stöðugildi í sérverkefni á knattspyrnusviði (styrkur á meðan verkefni er í gangi). Styrkir í þessum tilfellum eru eyrnamerktir einmitt þessum tilteknu verkefnum/stöðugildum og fengjust ekki ef þessi verkefni væri ekki í gangi.
Þá eru 2 stöðugildi á Laugardalsvelli sem sjá um viðhald vallarins sem og mannvirkisins í samstarfi við Reykjavíkurborg á grundvelli þjónustu- og rekstrarsamnings milli aðila.
Þetta gera alls 37,8 stöðugildi og eru 6 þeirra ekki fjármögnuð af KSÍ.

Til fróðleiks og samanburðar má nefna að starfsmenn færeyska knattspyrnusambandsins nú (í desember 2025) eru 35 alls, að meðtöldum landsliðsþjálfurum, og þar af 2 stöðugildi sem bera ábyrgð á umsjón og viðhaldi skrifstofuaðstöðu. Til viðbótar þessum 35 stöðugildum eru 4 starfsmenn sveitarfélagsins í Þórshöfn sem bera ábyrgð á viðhaldi þjóðarleikvangsins í Færeyjum og sinna honum samhliða 4 öðrum leikvöngum sem sveitarfélagið rekur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja

Arsenal sagt skoða mjög öflugan framherja
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona

Þrjú ensk lið á eftir varnarmanni Barcelona
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi

Roy Hodgson tekur þjálfaraúlpuna af hillunni og tekur við liði á Englandi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór

Var sterklega orðaður við Breiðablik en gerir langtíma samning við Þór
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans

Flugfélag með væna pillu á Arteta á afmælisdegi hans
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar

Telja að annað félag komi til leiks ef Barcelona kaupir hann ekki í sumar
433Sport
Í gær

Grátlegt fyrir Heimi og félaga

Grátlegt fyrir Heimi og félaga
433Sport
Í gær

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah

Liverpool til í að rústa félagaskiptametinu fyrir draumaarftaka Salah