fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
433Sport

Aftur sektaðir af KSÍ

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 22. janúar 2025 10:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víkingur hefur hlotið sekt og verið dæmdur ósigur í annað skiptið á Reykjavíkurmótinu þar sem liðið tefldi fram ólöglegum leikmanni.

Liðið hefur valið að láta Stíg Diljan Þórðarson, sem gekk aftur í raðir félagsins í vetur frá Triestina, spila á Reykjavíkurmótinu, en hann er ekki með leikheimild.

Hann var í liðinu sem gerði 2-2 jafnftefli við Fjölni í gær en Grafarvogsliðinu er dæmdur 3-0 sigur.

Víkingur undirbýr sig af kappi fyrir leikina gegn Panathinaikos í útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar 13. og 20. febrúar næstkomandi.

Af heimasíðu KSÍ:

Í leik Víkings R. og Fjölnis, í Reykjavíkurmóti karla, sem fram fór þann 21. janúar tefldi lið Víkings R. fram ólöglegum leikmanni.

Stígur Diljan Þórðarson spilaði með Víking R. í leiknum en var skráður í lið erlendis. Af þessum sökum hefur Víkingur R. verið sektað um 60.000 krónur. Úrslitum leiksins er breytt í 3-0 Fjölnir í vil.

Úr ábendingum sem sendar voru til þátttakenda í Reykjavíkurmóti meistaraflokks:
Félag, sem notar leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með því eða notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Staðfesti skrifstofa KSÍ að þátttakandi hafi verið óhlutgengur í leik skal mótanefnd þegar í stað skrá úrslit leiksins skv. ofangreindu og tilkynna það viðkomandi félögum. Heimilt er að kæra slíka skráningu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ og skal kærufrestur telja frá þeim degi sem tilkynningin er gefin út. Viðkomandi félög verða sektuð samkvæmt reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni .

Samkvæmt reglum KSÍ um Deildarbikarkeppni segir í grein 10.1:
Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð kr. 30.000 og að auki kr. 30.000 fyrir hvern leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með viðkomandi félagi og tekur þátt í leiknum. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð kr. 100.000.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Manchester City opinberar nýjar treyjur – Mynd

Manchester City opinberar nýjar treyjur – Mynd
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Guardiola vill hollenskan miðjumann í sumar

Guardiola vill hollenskan miðjumann í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Forráðamenn Arsenal óvissir í hvaða átt þeir eiga að fara í sumar

Forráðamenn Arsenal óvissir í hvaða átt þeir eiga að fara í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Beckham og Neville henda 17 leikmönnum burt

Beckham og Neville henda 17 leikmönnum burt
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Staðfest að Amorim verður ekki rekinn sama hvað gerist í næstu leikjum

Staðfest að Amorim verður ekki rekinn sama hvað gerist í næstu leikjum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist