Valur gat komið sér á topp Bestu deildar karla, tímabundið hið minnsta, með sigri á Stjörnunni á laugardagskvöld en tókst ekki.
Stjarnan vann 3-2 sigur og fyrsta tap Valsara í tæpan mánuð staðreynd. Liðið er nú fjórum stigum frá toppliði Breiðabliks. Víkingur á þá leik til góða gegn KR í kvöld og getur komist fimm stigum á undan Val.
„Valur á séns á að fara á toppinn með sigri en þeir nánast mættu ekki til leiks. Fyrri hálfleikur var afspyrnuslakur en á sama tíma pressaði Stjarnan vel og þeir voru grimmir á þá,“ sagði knattspyrnugoðsögnin Ólafur Jóhannesson, sem þjálfaði Val um árabil, á SÝN Sport eftir leik.
Mikið hefur verið rætt og ritað um hugarfar leikmanna Vals undanfarin ár og að þar vanti eitthvað upp á. Fleiri tóku til máls eftir tapið á laugardaginn, þar á meðal Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net.
„Toppsætið í boði á silfurfati en allir vissu að Valsmenn myndu segja nei takk. Lýsandi fyrir þetta lið því miður,“ skrifaði hann á X.
Toppsætið í boði á silfurfati en allir vissu að Valsmenn myndu segja nei takk. Lýsandi fyrir þetta lið því miður.
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) June 14, 2025