fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Biður lögregluna um að gefa út nafn árásarmannsins í Liverpool – „Þetta er ekki ég, ég er bara í vinnu“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 28. maí 2025 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peter Cunningham, 54 ára karlmaður frá Liverpool biður lögregluna þar í borg um að gefa út nafn á árásarmanninum frá því á mánudag.

Cunningham hefur verið ranglega sakaður um að vera maðurinn og myndir birtir af honum á samfélagsmiðlum.

„Þetta er ekki ég, ég er bara í vinnu,“ segir Cunningham í viðtali við BBC.

Árásin átti sér stað þegar skrúðganga Liverpool var að taka enda, fögnuðu stuðningsmenn með leikmönnum liðsins eftir að hafa orðið enskur meistari.

Maðurinn ók af stað í gegnum hópinn en samkvæmt Daily Mail er grunur um að hann hafi verið ölvaður þegar verknaðurinn átti sér stað. Sást maðurinn yfirgefa nærliggjandi knæpu skömmu áður.

„Lögreglan verður að gefa út nafnið því ég hef verið sakaður um þetta. Vinir og fjölskylda hringja endalaust í sumar, lögreglan verður að gera eitthvað,“ segir Cunningham.

Daily Mail segir það stórt spurningamerki við skipulag lögreglu að maðurinn hafi getað keyrt bílnum af stað þegar um milljón manns voru þarna komnir saman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona