fbpx
Miðvikudagur 29.október 2025
433Sport

Grindavík fékk rúmar sjö milljónir úr hamfarasjóði

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 26. maí 2025 17:00

Grindvíkingar fagna. Skjáskot: Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í marsmánuði heimsóttu fulltrúar KSÍ og UEFA Grindavík og skoðuðu keppnis- og æfingasvæði Grindvíkinga og ummerki eftir jarðhræringarnar sem þar hafa átt sér stað. Tilgangur heimsóknarinnar var að gefa fulltrúa UEFA kost á að kynna sér aðstæður þar sem KSÍ myndi, fyrir hönd knattspyrnudeildar Grindavíkur, sækja um styrk í sérstakan hamfarasjóð UEFA (UEFA Emergency Grant).

Í kjölfarið sótti KSÍ um fyrrgreindan styrk. Nefnd á vegum UEFA (Bureau of the UEFA Social and Environmental Sustainability Committee) fjallaði um umsóknina á fundi sínum 19. maí síðastliðinn og samþykkti styrk að upphæð 50.000 evrur, í samræmi við reglugerð sjóðsins og skilmála um úthlutun úr honum. Samkvæmt upplýsingum frá UEFA voru óvenju margar umsóknir um styrk úr hamfarasjóðnum að þessu sinni og því afar ánægjulegt að umsókn KSÍ hafi skilað árangri.

Haukur G. Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur:

„Knattspyrnudeild Grindavíkur vill koma á framfæri kærum þökkum til KSÍ og UEFA. Deildin hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum. Náttúruöflin gjöreyðilögðu æfingasvæði og innanhússaðstöðu deildarinnar, en með mikilli eljusemi og dugnaði sjálfboðaliða, þá hefur liðið snúið heim. Framundan er uppbyggingartími, og ófyrirséður kostnaður til næstu ára, en með stuðningi KSÍ og UEFA getur deildin spyrnt við fótum. Formaður KSÍ og starfsfólk KSÍ hefur verið deildinni gríðarleg hjálp síðustu mánuði. Fyrir það og fyrir stuðning UEFA verður seint þakkað nógsamlega.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sádarnir kynna ótrúlega hugmynd – Völlur sem yrði byggður ofan á skýjakljúf

Sádarnir kynna ótrúlega hugmynd – Völlur sem yrði byggður ofan á skýjakljúf
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Lið á Englandi skoða stöðu Vinícius Junior eftir hegðun hans um helgina

Lið á Englandi skoða stöðu Vinícius Junior eftir hegðun hans um helgina
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Josep Martinez grunaður um að hafa valdið banaslysi

Josep Martinez grunaður um að hafa valdið banaslysi
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Búist við að stóri dómurinn yfir City falli í næsta landsleikjafríi

Búist við að stóri dómurinn yfir City falli í næsta landsleikjafríi
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Líklegt að De Bruyne verði frá í nokkra mánuði

Líklegt að De Bruyne verði frá í nokkra mánuði
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Þetta í fari Salah og Van Dijk er áhyggjuefni fyrir Liverpool að mati Wayne Rooney

Þetta í fari Salah og Van Dijk er áhyggjuefni fyrir Liverpool að mati Wayne Rooney