fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
433Sport

Reyndi að hefja framhjáhald skömmu eftir brúðkaupið sitt – „Hver í andskotanum gerir svona?“

433
Miðvikudaginn 8. október 2025 12:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Jermain Defoe var á forsíðum götublaða Englands fyrir nokkrum árum eftir viðtal sem birtist við konu sem kom ekki fram undir nafni. The Upshot rifjaði þetta upp.

Konan hafði þekkt Defoe í dágóðan tíma en þau byrjuðu að spjalla reglulega í gegnum forritið WhatsApp í júlí árið 2022. Það var aðeins mánuði eftir að Defoe kvæntist konu sinni Donna Tierney en þau gengu í það heilaga þann 4. júní það ár og kostaði brúðkaupið 200 þúsund pund.

Konan sem Defoe var að reyna við vissi ekki að hann væri giftur en komst að því að lokum og lokaði á allt samband þeirra á milli. Hún áttaði sig á því að Defoe væri aðeins að leitast eftir kynlífi og komst að því of seint að hann væri frátekinn.

„Ég kynntist Jermain fyrir mörgum árum á bar en ekkert átti sér stað. Við vorum í nokkru sambandi á WhatsApp en ég hafði ekki rætt við hann í langan tíma,“ sagði konan.

„Í júlí þá byrjaði hann að senda mér mörg skilaboð, hann var örvæntingafullur í að hitta mig og við vorum mikið í því að daðra við hvort annað. Að lokum þá var hann ekki svo heillandi, það var á hreinu að hann hugsaði um einn hlut. Ég áttaði mig svo á því að hann var giftur, ég vildi ekki taka þetta lengra.

Það væri ekki sanngjarnt í garð konunnar hans. Hver í andskotanum gerir svona svo stutt eftir að hafa lofað því að eyða ævinni með einhverjum? Ég býst við því að hann hafi talið sig vera með völd, þessi frægi og ríki fyrrum fótboltamaður. Það var enginn tilgangur í að halda þessu áfram.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum
Góð tíðindi af Orra
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fer frítt frá Liverpool

Fer frítt frá Liverpool
433Sport
Í gær

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu
433Sport
Í gær

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift