fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
433Sport

Fékk nóg af því að kynnast stelpum á djamminu eftir að þetta kom upp – Sneri sér alfarið að vændiskonum

433
Fimmtudaginn 20. febrúar 2025 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Nicklas Bendtner er ansi skrautlegur karakter. Hæfileikarnir voru til staðar hjá Dananum en rétt hugarfar var það ekki. Twitter-aðgangurinn The Upshot tók saman nokkrar ótrúlegar sögur af Bendtner á knattspyrnuferlinum.

Árið 2005 gekk sautján ára gamall Bendtner í raðir Arsenal en var fljótlega lánaður til Birmingham. Þar var hann til vandræða fyrir að fara á strippstaði allt að fjórum sinnum í viku.

Stjóri liðsins á þeim tíma, Steve Bruce, spurði Bendtner út í orðrómana og Daninn svaraði að þeir væri falskir, hann færi fimm sinnum í viku á strippstaði.

Bendtner hélt að Bruce „væri að fá hjartaáfall“ hann var svo hissa á svarinu.

Um tveimur mánuðum síðar kynnist Bendtner ungri konu, Amy. Það vildi svo til að hún er dóttir Bruce.

Áfram hélt vesenið á Bendtner. Hann sneri aftur til Arsenal og skömmu síðar tapaði hann 400 þúsund pundum í rúllettu. Þá rústaði hann Aston Martin bifreið sinni um svipað leyti.

Þegar hann var að stíga sín fyrstu skref með aðalliðinu lenti hann í slag við Emmanuel Adebayor í tapi gegn Tottenham. Endaði Bendtner með blóðnasir og var sektaður um tveggja vikna laun, sem og Adebayor.

Bendtner hætti svo með Amy eftir að hafa verið hjá Arsenal um hríð. Var hún algjörlega niðurbrotin þegar hún hringdi í pabba sinn, Bruce, þar sem hann var í fríi á Marbella.

Eftir á að hyggja var það kannski fyrir bestu, hennar vegna. Bendtner fór að stunda næturlífið ákaflega og svaf hjá mikið af konum.

Eftir einn leik laumuðu Bendtner og liðsfélagi hans stelpum í sundlaug hótelsins sem þeir voru á. Þar var kynlíf stundað í rennibraut. „Við vorum rauðir á hnjánum eftir að hafa tekið þær aftan frá,“ sagði Daninn síðar.

Næturbröltið átti þó eftir að koma í bakið á Bendtner. Ein konan hélt því fram að hún væri ólétt eftir hann og hótaði að opinbera það nema að hann myndi borga fyrir brjóstastækkun hennar.

Á þessum tímapunkti hefur Bendtner ekki lengur áhuga á að kynnast stelpum á næturlífinu og vill aðeins kaupa sér þjónustu vændiskvenna.

Fleiri ótrúlegar sögur af Bendtner má lesa í þræði The Upshot hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum
Góð tíðindi af Orra
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fer frítt frá Liverpool

Fer frítt frá Liverpool
433Sport
Í gær

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu
433Sport
Í gær

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift