fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Klopp orðinn mjög óvinsæll hjá sínu fyrrum félagi: Létu í sér heyra í gær – ,,Ertu klikkaður?“

Victor Pálsson
Sunnudaginn 20. október 2024 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Mainz í Þýskalandi sendu alvöru pillu á fyrrum stjóra liðsins, Jurgen Klopp, í leik gegn í gær.

Klopp er umdeildur í Þýskalandi þessa dagana en hann hefur ákveðið að taka að sér starf sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Red Bull.

Red Bull á nokkur knattspyrnufélög víðs vegar um heiminn og má þar nefna RB Leipzig sem er í efstu deild Þýskalands.

Klopp þjálfaði og spilaði með Mainz á sínum tíma sem mætti Leipzig í gær og tapaði 2-0 í efstu deild.

Eins og flestir vita er Klopp fyrrum þjálfari Liverpool en RB Leipzig sem og fleiri Red Bull lið eru umdeild um allan heim.

,,Ertu búinn að gleyma því sem við kenndum þér?“ stóð á einum borða á leik gærdagsins og á öðrum stóð: ,,Ertu klikkaður?

Klopp er ekki vinsæll á meðal stuðningsmanna Mainz og heldur ekki Dortmund en hann hefur þjálfað bæði þessi lið í heimalandinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar