Helen Wood er kona sem komst í fréttirnar fyrir nokkrum árum síðan en hún er vændiskona sem starfar á Englandi.
Wood opnaði sig um samband sitt við Wayne Rooney fyrir mörgum árum en þau sváfu saman oftar en einu sinni.
Rooney var fundinn sekur um framhjáhald en hann átti börn með konu sinni Colleen Rooney á þessum tíma.
Wood hefur nú opnað sig um annað samband við fyrrum leikmann Manchester United – hann er ekki nafngreindur.
Wood segir að þessi maður hafi verið af erlendum uppruna og hélt hann framhjá eiginkonu sinni reglulega.
,,Ég byrjaði að hitta fyrrum leikmann Manchester United. Hann var giftur og átti börn,“ sagði Wood.
,,Í hvert skipti sem eiginkonan var í burtu með börnin þá pantaði hann stelpur til að koma heim til sín.“
,,Hann var ekki enskur og vildi ekki tala. Það var samt ekki það furðulegasta – það furðulegasta tengdist umboðsmanninum hans.“
,,Í hvert skipti sem ég var þarna þá var umboðsmaður hans þarna líka. Á meðan við stunduðum kynlíf þá kyssti hann umboðsmann sinn og rassskellti.“
,,Ég veit ekki hvort hann hafi verið tvíkynhneigður, í neitun eða hvort þetta var bara hluti af þessu. Þetta var stórfurðulegt.“