fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433

Úlfur framlengir við Fjölni og stýrir liðinu næstu tvö árin

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 2. október 2024 12:06

Úlfur t.h Mynd: Fjölnir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnudeild Fjölnis og Úlfur Arnar Jökulsson hafa framlengt samning Úlfs um þjálfun Lengjudeildarliðs Fjölnis. Samningurinn gildir til tveggja ára.

„Við hjá Fjölni erum ákaflega ánægð með að hafa endurnýjað samninginn við Úlf. Við höfum byggt upp ungt og skemmtilegt lið sem var nálægt því að vinna sig upp um deild. Við munum áfram leggja áherslu á að ungir knattspyrnumenn eigi greiðan aðgang að meistaraflokkshópi félagsins og að Fjölnir sé í fremstu röð í að búa til unga afreksleikmenn. Þetta er í samræmi við afreksstefnu okkar. Í þessari vegferð gegnir Úlfur lykilhlutverki“ segir Björgvin Jón Bjarnason formaður knattspyrnudeildar Fjölnis í tilefni af framlengingu samningsins.

„Ég er bæði ánægður og stoltur að hafa endurnýjað samning minn sem þjálfari Fjölnis í meistaraflokki karla í knattspyrnu. Fjölnir er minn uppeldisklúbbur og ég á þar sterkar rætur. Mér finnst mikill heiður að vera treyst fyrir áframhaldandi þjálfun Fjölnis. Ég hlakka til að halda áfram að vinna með þessum frábæra hópi og byggja ofan á þann árangur sem náðist í sumar.

Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við komandi tímabil af krafti og eldmóði og trúi því að við getum gert enn betur. Áfram Fjölnir!“ sagði Úlfur við sama tækifæri.

Fjölnir hefur gengið frá samningum við 6 15-16 ára knattspyrnumenn sem munu á næsta ári verða hluti af afreksstarfi félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Útilokar að ná sáttum við Rio Ferdinand – Hittust á strönd og hann neitaði að heilsa honum

Útilokar að ná sáttum við Rio Ferdinand – Hittust á strönd og hann neitaði að heilsa honum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Bróðir Kobbie Mainoo vakti athygli á Old Trafford í gær – Klæðnaður hans var fast skot á Amorim

Bróðir Kobbie Mainoo vakti athygli á Old Trafford í gær – Klæðnaður hans var fast skot á Amorim
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Harðar aðgerðri lögreglu bera árangur – Hættir að selja ólöglegt efni

Harðar aðgerðri lögreglu bera árangur – Hættir að selja ólöglegt efni
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup