fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
433Sport

Breiðablik tyllti sér á toppinn – Glæsilegt mark Gylfa gerði mikið fyrir Val

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 23. september 2024 21:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Glæislegt mark Gylfa Þórs Sigurðssonar bjargaði stigi fyrir Val gegn Stjörnunni á heimavelli í Bestu deild karla í kvöld. Staðan var slæm fyrir Val sem kom til baka og náði jafntefli.

Stjarnan leiddi 0-2 í hálfleik en Albin Skoglund lagaði stöðuna áður en Gylfi Þór Sigurðsson hlóð í glæsilegt mark til að jafna leikinn.

Í hinum leik kvöldsins vann Breiðablik 2-0 sigur á ÍA þar sem sjálfsmark kom Blikum yfir áður en Ísak Snær Þorvaldsson tryggði sigurinn með geggjuðu marki í uppbótartíma.

Breiðablik tyllir sér á toppinn með sigri en Víkingur mætir FH á miðvikudag.

Stigið fyrir Val var dýrmætt en liðið er í þriðja sæti og áfram fjórum stigum á undan Stjörnunni og fimm stigum á undan ÍA.

Breiðablik 2 – 0 ÍA:
1-0 Johannes Vall (Sjálfsmark)
2-0 Ísak Snær Þorvaldsson

Valur 2 – 2 Stjarnan:
0-1 Hilmar Árni Halldórsson
0-2 Adolf Daði Birgisson
1-2 Albin Skoglund
2-2 Gylfi Þór Sigurðsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“
433Sport
Í gær

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“
433Sport
Í gær

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með