Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson birti athyglisverða færslu á X (áður Twitter) yfir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar þar sem hann kveikti aðeins í stuðningsmönnum Manchester United.
Simmi, eins og hann er gjarnan kallaður, er harður stuðningsmaður Liverpool og sá sína menn kveðja Jurgen Klopp eftir níu farsæl ár á sunnudag. Þjóðverjinn vann allt sem hægt var að vinna á tíma sínum á Anfield.
„Merkilegt að ManUtd vinir minir vilji gera lítið úr Klopp þessa daganna. Ferguson er vissulega eins og Ford Mustang 1965, goðsögn. Hins vegar að bera Mustang 65 saman við Teslu er óréttlátt fyrir alla. En svo að það sé sagt þá myndi nú Tesla rústa Mustang 65 á alla vegu í dag,“ skrifaði Simmi á X.
Þarna á hann auðvitað við Sir Alex Ferguson, sem var í 27 ár hjá Manchester United og vann ensku úrvalsdeildina 13 sinnum.
Ef ætlunarverk Simma var að pirra stuðningsmenn United tókst það ágætlega hjá honum því hann fékk nokkur beinskeytt svör.
„Jújú gæinn með jafn marga titla og Ranieri er jafn góður og Besti þjálfari PL frá upphafi. Farðu nú að setja tappann í flöskuna. Tölur tala,“ skrifaði einn.
„Stend með Ívari Arndal í ÁTVR. Það er greinilega stórhættulegt að áfengi sé keyrt heim til fólks. Einhver fara og stoppa Simma,“ skrifaði annar.
„Ertu þá að segja að handþeyttur rjómi sé síðri en vélþeyttur?“ spurði enn annar netverjinn.
Merkilegt að ManUtd vinir minir vilji gera litið ur Klopp þessa daganna. Ferguson er vissulega eins og Ford Mustang 1965, goðsögn. Hins vegar að bera Mustang 65 saman við Teslu er óréttlátt fyrir alla. En svo að það sé sagt þá myndi nú Tesla rústa Mustang 65 á alla vegu í dag.🤷🏼♂️
— Simmi Vil (@simmivil) May 19, 2024