Chloe Gray starfar í kynlífsbransanum á Englandi. Hún veitir þjónustu í gegnum síma í myndbandssamtölum. Hún er ekki í því að hitta eigin viðskiptavini.
Gray sérhæfir sig í því að stjórna og niðurlægja, eitthvað sem margir virðast sækjast eftir og borga himinháar upphæðir fyrir slíka þjónustu.
Í viðtali við enska miðla segir Gray frá því þegar leikmaður Arsenal keypti sér þjónustu hennar. Hún segir að hann hafi eytt um þúsund breskum pundum og bað Gray um að velja kvenmannsföt sem hann myndi klæðast.
Málið hefur vakið töluverða athygli en leikmaðurinn er að sjálfsögðu ónefndur.
„Hann var í kvenkyns nærfötum, var með varalit, hárkollu og allt,“ segir Gray og bendir á að hann hafi viljað láta niðurlægja sig.
„Mér finnst ruglað hvað þeir fara frá því að vera í svo valdamiklu starfi og að eru svo faglegir en svo koma þeir fyrir framan skjáinn og gera eitthvað sem er svo óeðlilegt.“
„Það kemur mér ekkert á óvart lengur samt. Ég hef gert þetta lengi og lít meira á þetta sem áhugamál en vinnu.“