Gunnar Vatnhamar hefur framlengt samning sinn hjá Víkingi til 2027. Félagið staðfesti þetta fyrir skömmu.
Færeyski landsliðsmaðurinn kom til Víkings í fyrra og hefur staðið sig frábærlega hér á landi. Vann hann tvennuna með liðinu á sinni fyrstu leiktíð og var með betri mönnum.
Tilkynning Víkings
Knattspyrnudeild Víkings hefur framlengt samning sinn við færeyska landsliðsmanninn Gunnar Vatnhamar. Gunnar kom til félagsins í apríl árið 2023 og hefur hann leikið 35 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 4 mörk.
Gunnar kom til félagsins frá færeyska félaginu Víkingi í Götu þar sem hann hafði leikið allan sinn feril, 259 leiki og skoraði í þeim 43 mörk. Gunnar er fastamaður í færeyska landsliðinu og hefur leikið 38 landsleiki og hefur skorað í þeim 2 mörk.
Hann varð færeyskur bikarmeistari árin 2014 og 2015 með Víkingi og færeyskur meistari með liðinu tímabilin 2016 og 2017. Gunnar var einnig lykilmaður í tvöföldu meistaraliði okkar Víkinga árið 2023.
Nýr samningur Gunnars við Víking er til þriggja ára og gleður það Knattspyrnudeild Víkings að tilkynna með mikilli hamingju að Gunnar Vatnhamar verður leikmaður félagsins út árið 2027.