Nottingham Forest íhugar að lögsækja sparkspekinginn Gary Neville vegna ummæla hans um félagið á dögunum. Daily Mail fjallar um málið.
Það varð allt brjálað á bak við tjöldin hjá Forest eftir leikinn gegn Everton á sunnudag. Um var að ræða fallbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni sem tapaðist 2-0. Forest vildi fá þrjú víti í leiknum en en Stuart Attwell, VAR-dómari, sendi Anthony Taylor dómara aldrei í skjáinn til að skoða atvikin.
Í kjölfarið sá eigandi Forest, Evangelos Marinakis, til þess að félagið sendi út yfirlýsingu þar sem dómarayfirvöld voru gagnrýnd. Forest segist hafa varað þau við að Attwell væri stuðningsmaður Luton, sem er í fallslagnum við Forest.
„Það hefur ítrekað verið reynt á þolinmæði okkar. Nú munum við skoða möguleika okkar,“ sagði þá meðal annars í yfirlýsingu Forest. Enska úrvalsdeildin fordæmdi vinnubrögð Forest svo með sinni eigin yfirlýsingu.
Neville var þá ekki skemmt yfir vinnubrögðum Forest og lét félagið heyra það.
„Það er eins og mafían hafi sent út þessa yfirlýsingu. Hvað í andskotanum eru þeir að spá?“ sagði hann og hélt áfram.
„Þeir láta eins og frek börn. Þetta er vandræðalegt. Að gefa í skyn fyrir að verið sé að svindla með því að hafa stuðningsmann Luton sem VAR-dómara er hneyksli. Þeir munu borga fyrir þetta.“
Forest er ekki hrifið af ummælum Nevilla og íhugar sem fyrr segir málsókn á hans hendur.