fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
433Sport

Tvennum sögum fer af viðræðunum við Gylfa Þór – „FH segir að það sé ekki rétt“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 8. apríl 2024 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gylfi Þór Sigurðsson hefði verið til í að ganga til liðs við uppeldisfélag sitt, FH, og spila frítt fyrir það er hann sneri aftur í íslenska boltann í vetur. Þetta kom fram í hlaðvarpsþættinum Dr. Football á dögunum.

Eins og flestir vita gekk Gylfi í raðir Vals fyrir tímabilið og skoraði hann í fyrsta leik sínum í Bestu deildinni í sigri á ÍA í gær.

„Allir í kringum Gylfa segja að hann hafi verið til í að spila frítt fyrir FH. Vandamálið var að FH hafði engan áhuga á að semja við Gylfa. Þeir sögðu honum að hann mætti mæta á æfingar og annað slíkt,“ sagði Hjörvar Hafliðason í Dr. Football fyrir helgi.

FH-ingar hafa hins vegar ekki sömu sögu að segja að sögn Hjörvars.

„Ég heyrði í nokkrum FH-ingum og spurði þá út í þetta. Þeir sögðu að þeir hafi haft samband við Gylfa en þeim hafi ekki fundist að hann hefði áhuga. Mönnum ber ekki saman um hvernig þetta var.

Upplifun hans og hans teymis er sú að FH hafi ekki haft áhuga. FH segir að það sé ekki rétt. Það er sérstakt hvernig menn sjá þetta mismunandi,“ sagði Hjörvar enn fremur, en Gylfi er sem fyrr segir alinn upp hjá FH. Hann fór svo yfir til Breiðabliks áður en hann hélt út í atvinnumennsku 16 ára gamall.

Gylfi skrifaði undir tveggja ára samning við Val. Hann er einn fremsti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, er markahæsti landsliðsmaðurinn frá upphafi og með yfir 300 leiki í ensku úrvalsdeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent

Eigandi Chelsea tengdur miðabraski – Hækka verðið um tæp 5 þúsund prósent
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt

Forráðamenn United segja Bruno Fernandes segja ósatt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar

Fabrizio Romano með tíðindi af framtíð Alberts – Segir líklegt að eitthvað stórt geti gerst í janúar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna

Seðlabankastjórinn leggur skóna á hilluna
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup

United sagt skoða sölu í janúar til að fjármagna kaup
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona

Sagðir skoða það að reka Frank og ráða fyrrum miðjumann Barcelona