Ólafur Kristjánsson er nýr þjálfari hjá kvennaliði Þróttar sem endaði í fjórða sæti í Bestu deild kvenna í sumar. Hann tekur við af Nick Chamberlain.
Ólafur gerir þriggja ára samning við Þrótt. 433.is sagði fyrst allra miðla frá því að Ólafur væri að taka við starfinu.
Ólafur væri þar að stíga sitt fyrsta skref í þjálfun í meistaraflokki kvenna en hann hefur hér á landi stýr karlaliði Fram, Breiðabliks og FH. Hann hefur einnig starfað sem þjálfari í atvinnumennsku.
Ólafi var sagt upp sem yfirmanni knattspyrnumála hjá Breiðabliki í sumar og var orðaður við sama starf hjá HK, hann hefur einnig verið nefndur til sögunnar sem þjálfari karlaliðs KR.
Mikill uppgangur hefur verið hjá kvennaliði Þróttar síðustu ár og liðið verið stolt félagsins, koma Ólafs sýnir metnaðinn í félaginu.
Ólafur gerði Breiðabik að Íslandsmeisturum og bikarmeisturum árin 2009 og 2010 en hann fór síðan til Danmerkur og þjálfaði þar.
„Ég er mjög spenntur að taka við kvennaliði Þróttar sem verið hefur í fremstu röð í íslenskum kvennafótbolta undanfarin ár. Framtíðarsýn Þróttara hefur heillað mig og ég trúi því að við getum gert liðið enn betra en það er í dag. Ég tek við góðu búi og lít á það sem mjög verðugt verkefni að halda áfram þeirri góðu vinnu sem unnin hefur verið í Þrótti,“ segir Ólafur.