Alyssa Jay, 27 ára gömul fyrirsæta segir leikmann enska úrvalsdeildarfélagsins Everton hafa beðið sig um að senda sér nektarmyndir og þegar að hún hafi neitað þeirri beiðni hafi hann spurt hana hvort hún vissi ekki hver hann er.
Fyrirsætan segir umræddan leikmann, sem hún nefnir ekki á nafn, hafa beðið sig oft og mörgum sinnum að senda sér nektarmyndir í gegnum samfélagsmiðlaforritið Snapchat.
„Hann spurði mig hvort ég ætlaði mér ekki að senda sér myndir og ég svaraði því neitandi. Þá sagði hann á móti: ´Veistu í alvörunni ekki hver ég er?´ og spurði mig hvað ég héldi eiginlega að ég væri.“
Alyssa segir leikmanninn hafa brugðist ókvæða við neitun sinni.
„Hann var reiður og dónalegur við mig. Hann sendi mér móðgandi skilaboð og var sífellt að senda eitthvað á mig.“
Alyssa segist hafa kannast við leikmanninn.
„Ég sá hver hann var bara út frá Instagram reikningi hans en það þýddi ekki neitt fyrir mig. Ég tel vandamálið við suma knattspyrnumenn vera að stundum fer vald þeirra lóðbeint í hausinn á þeim.“
Fyrirsætan blokkaði leikmanninn í kjölfarið á beiðni hans og segir nú sögu sína í viðtali við DailyStar.