Íslenski umboðsmaðurinn Magnús Agnar Magnússon hefur verið dæmdur í 18 mánaða bann frá störfum í sænska boltanum. Þetta kemur fram í sænska miðlinum Fotbollskanalen.
Bannið kemur til vegna kvörtunnar Hugo Larsson, 19 ára gamals leikmanns Frankfurt. Sá var á mála hjá Malmö í heimalandinu þegar hann var með Magnús sem umboðsmann.
Larsson sleit sambandi sínu við Magnús í vor og var hann ósáttur með viðbrögð hans við því. Kvartaði hann því til sænska knattspyrnusambandsins.
Segir Larsson að Magnús hafi ekki verið sáttur við ákvörðun sína, hann hafi reynt að fá hann til að skipta um skoðun og einnig hótað honum lögsókn.
Þá braut Magnús reglur með því að starfa með leikmanni undir 18 ára aldri, en Larsson var 17 ára þegar Magnús gerðist umboðsmaður hans. Hefur hann ekki réttindi til þess.
Magnús vinnur fyrir Stellar umboðsskrifstofuna og er með leikmenn á sínum snærum víða, íslenska sem erlenda.
Hann getur áfrýjað dómnum til 11. október.