Mauricio Pochettino, nýr stjóri Chelsea, hefur gefið stuðningsmönnum liðsins afar óskýr svör varðandi framtíð Romelu Lukaku.
Lukaku var í láni hjá Inter Milan á síðustu leiktíð en möguleiki er á því að hann spili með Chelsea í vetur.
Pochettino tók við Chelsea í sumar og hefur ekki unnið með Pochettino áður.
Argentínumaðurinn gat ekki staðfest hvort Lukaku myndi spila með Chelsea á næsta tímabili en staðfestir þó að staðan sé óljós.
,,Staðan er sú að allir aðilar þekkja stöðuna. Ef hann þekkir stöðuna þá mætir hann til æfinga 12 eða 13. júlí til að vera hluti af undirbúningstímabilinu,“ sagði Pochettino.
,,Eins og allir aðrir leikmenn hér, þegar þeir koma þá banka þeir á mínar dyr og heilsa, ef hann verður ennþá leikmaður Chelsea.“