Liverpool hefur staðfest komu miðjumannsins Dominik Szoboszlai frá RB Leipzig.
Þessi skipti hafa legið í loftinu undanfarna daga en um er að ræða spennandi 22 árs gamlan leikmann.
Szoboszlai kostar Liverpool 60 milljónir punda en hann gekkst undir læknisskoðun um helgina og gerir fimm ára samning.
Þetta er annar miðjumaðurinn sem Liverpool fær í sumar á eftir Alexis Mac Allister sem kom frá Brighton.
Ljóst er að Ungverjinn Szoboszlai mun klæðast treyju númer átta á Anfield.