fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
433Sport

Svona er fyrsti landsliðshópur Age Hareide: Albert snýr aftur – Kristian Nökkvi og Willum með

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 6. júní 2023 10:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands,  hefur kynnt sinn fyrsta landsliðshóp sem mætir Slóvakíu og Portúgal í undankeppni Evrópumótsins. Leikirnir fara fram 17 og 20 júní.

Kristian Nökkvi Hlynsson ungur leikmaður Ajax er í hópnum en þar einnig Willum Þór Willumsson sem hefur ekki verið lengi í hópnum.

Birkir Bjarnason sem er leikjahæsti leikmaður í sögu Íslands snýr aftur í hópinn en það gerir Albert Guðmundsson leikmaður Genoa einnig.

Kristian Nökkvi er í hópnum. Getty Images

Albert hefur ekki verið í hópnum í heilt ár. Hann og Arnar Þór Viðarsson höfðu ekki náð saman og hætti Arnar að velja Albert og sakaði hann um að gera kröfur um sérmeðferð.

Aron Einar Gunnarsson, Jóhann Berg Guðmundsson og Alfreð Finnbogason eru með í hópnum sem má sjá hér að neðan.

Davíð Kristján Ólafsson er einn þeirra sem dettur út úr hópnum en hann hefði verið í stóru hlutverki hjá Arnari.

Getty Images

Ísland er með þrjú stig eftir tvo leiki, sigur gegn Liechtenstein og tap gegn Bosníu og Hersegóvínu.

Ísland og Slóvakía hafa mæst fimm sinnum áður þar sem Slóvakía vann þrjá sigra, Ísland einn og einn leikur fór jafntefli. Ísland hefur fimm sinnum mætt Portúgal þar sem Portúgal vann sigur í fjórum leikjum og einn fór jafntefli.

Hópurinn:
Elías Rafn Ólafsson – 2000 – 4 leikir – 0 mörk
Rúnar Alex Rúnarsson – 1995 – 22 leikir – 0 mörk
Hákon Rafn Valdimarsson – 2001 – 4 leikir – 0 mörk

Hörður Björgvin Magnússon – 1993 – 46 leikir – 2 mörk
Daníel Leó Grétarsson – 1995 – 13 leikir – 0 mörk
Sverrir Ingi Ingason – 1993 – 40 leikir – 3 mörk
Guðlaugur Victor Pálsson – 1991 – 34 leikir – 1 mark
Alfons Sampsted – 1998 – 15 leikir – 0 mörk
Valgeir Lunddal Friðriksson – 2001 – 5 leikir – 0 mörk

© 365 ehf / Eyþór

Jóhann Berg Guðmundsson – 1990 – 84 leikir – 8 mörk
Birkir Bjarnason – 1988 – 113 leikir – 15 mörk
Aron Einar Gunnarsson – 1989 – 101 leikur – 5 mörk
Arnór Ingvi Traustason – 1993 – 46 leikir – 5 mörk
Ísak Bergmann Jóhannesson – 2003 – 18 leikir – 3 mörk
Þórir Jóhann Helgason – 2000 – 16 leikir – 2 mörk
Mikael Neville Anderson 1998 – 20 leikir – 2 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson – 1998 – 26 leikir – 4 mörk
Hákon Arnar Haraldsson – 2003 – 9 leikir – 1 mark
Kristian Nökkvi Hlynsson – 2004
Albert Guðmundsson – 1997 – 33 leikir – 6 mörk
Willum Þór Willumsson – 1998 – 1 leikur – 0 mörk
Mikael Egill Ellertsson – 2002 – 12 leikir – 1 mark
Arnór Sigurðsson – 1999 – 27 leikir – 2 mörk

Sævar Atli Magnússon – 2000 – 2 leikir – 0 mörk
Alfreð Finnbogason – 1989 – 65 leikir – 15 mörk

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

24 ára en hefur skorað 300 mörk á ferlinum

24 ára en hefur skorað 300 mörk á ferlinum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Breskir miðlar fjalla mikið um nýjasta Íslandsvininn – Benda á hvað íslenskir miðlar hafa að segja

Breskir miðlar fjalla mikið um nýjasta Íslandsvininn – Benda á hvað íslenskir miðlar hafa að segja
433Sport
Í gær

Eru skyndilega með þykkt veski og vilja taka Gyokeres fyrir framan nefið á Arsenal og United

Eru skyndilega með þykkt veski og vilja taka Gyokeres fyrir framan nefið á Arsenal og United
433Sport
Í gær

Stelpurnar okkar kláruðu dæmið snemma en tóku fótinn svo af bensíngjöfinni í hitanum

Stelpurnar okkar kláruðu dæmið snemma en tóku fótinn svo af bensíngjöfinni í hitanum
433Sport
Í gær

Newcastle vill kaupa þrjá leikmenn – Joao Pedro er ofarlega á lista

Newcastle vill kaupa þrjá leikmenn – Joao Pedro er ofarlega á lista
433Sport
Í gær

Halda því fram að United sé komið í bílstjórasætið að fá Gyokeres

Halda því fram að United sé komið í bílstjórasætið að fá Gyokeres