fbpx
Laugardagur 10.maí 2025
433Sport

Síðasti séns að kaupa mótsmiða á leiki Strákanna okkar – Verð frá 8.800 krónum

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 16. maí 2023 17:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sölu mótsmiða á heimaleiki Íslands í undankeppni EM 2024 lýkur á morgun, 17. maí, kl. 12:00 á Tix.is.

Fyrsti heimaleikurinn verður spilaður á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Með Íslandi í riðli eru Slóvakía, Portúgal, Bosnía Hersegóvína, Lúxemborg og Liechtenstein. Ísland er með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina í riðlinum.

Með kaupum á mótsmiða fæst 20% afsláttur af miðum í almennri miðasölu. Vakin er athygli á fleiri og fjölbreyttari verðflokkum á landsleiki á Laugardalsvelli en áður. Nú er hægt að kaupa miða í fimm verðflokkum, sem fyrr með 50% afslætti fyrir 16 ára og yngri.

Miðakaupendur fá sömu sætin á alla fimm leikina og er hægt að fá miða allt frá kr. 8.800 til kr. 36.400 á alla fimm leikina. Mótsmiðasölu lýkur miðvikudaginn 17. maí kl. 12:00. Almenn miðasala á stakan leik hefst tveimur vikum fyrir hvern leik.

Heimaleikir Íslands í undankeppni EM 2024
Ísland – Slóvakía laugardaginn 17. júní kl. 18:45
Ísland – Portúgal þriðjudaginn 20. júní kl. 18:45
Ísland – Bosnía Hersegóvína mánudaginn 11. september kl. 18:45
Ísland – Lúxemborg föstudaginn 13. október kl. 18:45
Ísland – Liechtenstein mánudaginn 16. október kl. 18:45

Hér fyrir neðan má sjá mótsmiðaverð í hverju verðsvæði fyrir sig ásamt skýringarmynd af stúkum vallarins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fleiri þyrftu að hugsa eins og Óskar – „Bara ótrúlegt“

Fleiri þyrftu að hugsa eins og Óskar – „Bara ótrúlegt“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Romano færir stuðningsmönnum Arsenal frábærar fréttir – ,,Here we go!“

Romano færir stuðningsmönnum Arsenal frábærar fréttir – ,,Here we go!“