Það er útlit fyrir að James Milner sé á förum frá Liverpool og miðað við nýjustu fregnir er líklegt að Brighton sé næsti áfangastaður.
The Athletic segir frá þessu nú fyrir skömmu.
Milner er orðinn 37 ára gamall og hefur verið á mála hjá Liverpool síðan 2015. Hefur kappinn reynst ansi drjúgur á Anfield.
Nú er samningur hans hins vegar að renna út og þrátt fyrir að Jurgen Klopp vilji halda honum ætla æðstu menn hjá Liverpool ekki að bjóða honum nýjan samning.
Brighton ætlar sér að krækja í leikmanninn. Félagið má ekki ræða við Milner strax en ákvörðun hefur verið tekin innanhúss um að leggja allt kapp á að fá hann.
Telur Brighton og reynsla Milner henti vel í hóp sinn.
Burnley fylgist einnig með gangi mála. Milner lék með stjóra liðsins, Vincent Kompany, hjá Manchester City á sínum tíma.