fbpx
Föstudagur 16.maí 2025
433Sport

Zlatan hótaði að fótbrjóta liðsfélaga sinn – Væri samt til í að spila með einhverjum eins og honum

Victor Pálsson
Sunnudaginn 23. apríl 2023 12:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Zlatan Ibrahimovic er ekkert lamb að leika sér við en hann er á síðustu metrum ferilsins þessa stundina.

Zlatan var lengi einn besti sóknarmaður heims en hann lék með liðum eins og Ajax, Juventus, Inter Milan, AC Milan, PSG og Manchester United.

Svíinn er á mála hjá AC Milan í dag en hann er 41 árs gamall og kemur lítið við sögu þessa dagana.

Sóknarmaðurinn hefur ekki alltaf náð vel saman með liðsfélögum sínum og þá sérstaklega ekki Rafael van der Vaart sem lék með liðum eins og Real Madrid og Tottenham.

Hollendingurinn lék með Zlatan hjá Ajax í Hollandi og hefur heldur betur áhugaverða sögu að segja.

,,Já það er rétt [að hann hafi hótað að fótbrjóta mig] en Zlatan sagði þetta við marga,“ sagði Van der Vaart.

,,Það er líka rétt að hlutirnir gengu bara ekki upp á milli okkar en ég væri frekar til í að vera með einhverjum eins og honum í liði, sem er heiðarlegur, jafnvel þó rifrildi geti átt sér stað.“

,,Það voru hlutir sem áttu sér stað, það var ekkert eitt sem gerðist, við bara náðum ekki vel saman.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

FIFA telur tíma komin á það að fótboltinn komi heim til Englands – HM 2038 gæti farið fram þar

FIFA telur tíma komin á það að fótboltinn komi heim til Englands – HM 2038 gæti farið fram þar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sean Dyche öruggur á því að hann myndi gera betur en Amorim – Einfaldur fótbolti

Sean Dyche öruggur á því að hann myndi gera betur en Amorim – Einfaldur fótbolti
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Minningarsjóður Egils Hrafns styrkir Fylki og Selfoss

Minningarsjóður Egils Hrafns styrkir Fylki og Selfoss
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hafa engan áhuga á að sleppa Trent fyrr

Hafa engan áhuga á að sleppa Trent fyrr
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Losar United sig strax við hann? – Áhugi á að fá hann aftur til Ítalíu

Losar United sig strax við hann? – Áhugi á að fá hann aftur til Ítalíu
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sjáðu þegar Messi brjálaðist í gær

Sjáðu þegar Messi brjálaðist í gær