fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Símtal frá Ferguson fór ekki vel í Jurgen Klopp

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 5. apríl 2023 14:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Robert Lewandowski framherji Barcelona segir að Jurgen Klopp hafi orðið reiður þegar Sir Alex Ferguson hringdi í hann og vildi fá hann til Manchester United.

Lewandowski og Klopp unnu þá saman hjá Borussia Dortmund en pólski framherjinn segir frá málinu. Símtalið frá Ferguson gladdi Lewandowski en ekki Klopp.

„Ég man þetta augnablik vel, við áttum æfingaleik gegn Bochum og ég var tekinn af velli í hálfleik. Ég kíkti á símann minn og sá símtal með landsnúmerinu frá Englandi. Ferguson hafði reynt að hringja og sendi svo skilaboð, hann vildi tala við mig,“ sagði Lewandowski.

„Ég var í klefanum en fór í sturtu og hringdi svo til baka, ég reyndi að skilja hann og enskan mín var bjöguð. Ég reyndi að skilja Ferguson, ég var bara 22 ára gamall og þetta var sérstakt augnablik.“

Lewandowski fór næst í það að ræða við Jurgen Klopp þá stjóra Dortmund og aðra stjórnendur.

„Ég talaði við formanninn og Jurgen Klopp, ég vildi fara til Manchester United en þeir sögðu mér að gleyma því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar