Stefanía Sigurðardóttir, eiginkona fyrrum landsliðsmannsins Birkis Más Sævarssonar, veltir því upp með færslu á Twitter af hverju umræðan í kringum handboltalandslið Íslands sé mikið jákvæðari en umræðan í kringum fótboltalandsliðið.
Birkir, sem leikur með Val, á að baki 103 leiki fyrir A-landslið Íslands. Stefanía tók eftir neikvæðri umræðu um liðið er eiginmaður hennar lék með því.
„Af hverju eru allir svona meðvirkir með handboltalandsliðum en fótboltalandslið hafa alltaf fengið það óþvegið?“ spyr Stefanía á Twitter.
„Man eftir að hafa ekki skilið hvernig Birkir gat haldið einbeitingu miðað við kjaftæðið og orðbragðið í fjölmiðlum.
Er ekki að tala um siðlaust ofbeldi utan vallar!“ tekur hún fram að lokum.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta lauk nýverið keppni á HM. Þar olli liðið nokkrum vonbrigðum og hafnaði í tólfta sæti. Aftur á móti hefur umræðan í þjóðfélaginu almennt verið fremur jákvæð.
Karlalandsliðið í knattspyrnu hefur aftur á móti legið undir harðri gagnrýni undanfarin ár undir stjórn Arnars Þórs Viðarssonar.
Af hverju eru allir svona meðvirkir með handboltalandsliðum en fótboltalandslið hafa alltaf fengið það óþvegið. Man eftir að hafa ekki skilið hvernig Birkir gat haldið einbeitingu miðað við kjaftæðið og orðbragðið í fjölmiðlum. Er ekki að tala um siðlaust ofbeldi utan vallar!
— Stebba Sigurðardóttir (@StebbaSig) January 25, 2023