fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Ummæli Harðar ratað í albanska fjölmiðla – Lýsti yfir hræðslu í gær

Helgi Sigurðsson
Miðvikudaginn 28. september 2022 11:00

Hörður Magnússon. © 365 ehf / Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Herði Magnússyni, íþróttalýsanda á Viaplay, leist ekki á blikuna undir lok leiks íslenska karlalandsliðsins gegn Albaníu í gærkvöldi. Hann lýsti yfir hræðslu sinni innan um stuðningsmenn Albana. Þetta hefur nú verið tekið fyrir í fjölmiðlum þar í landi.

Sjá einnig: Höddi Magg hræddur í stúkunni innan um blóðheita Albani – „Ég fæ slæmt augnaráð, þetta er mjög óþægilegt“

Leiknum lauk 1-1, þar sem Mikael Neville Anderson jafnaði fyrir Ísland í blálokin.

Lærisveinar Arnars Þórs Viðarssonar sýndu mikinn karakter með því að koma til baka. Liðið var manni færra frá 11. mínútu, þegar fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fékk rautt spjald.

Eftir að Hörður lýsti sigurmarki íslenska liðsins, og fagnaði eðlilega, sagðist hann hafa fengið slæmt augnaráð frá Albönum í stúkunni.

Frétt Sport Ekspres

„Ég fæ slæmt augnaráð, þetta er mjög óþægilegt. Ég fæ vonandi öryggisgæslu,“ sagði hann í beinni útsendingu á Viaplay.

Albanskir stuðningsmenn eru gjarnan blóðheitir. Hörður lýsti leiknum úr stúkunni og stóð ekki alveg á sama. Ummæli hans rötuðu í fréttir fjölmiðla hér á landi og nú hafa albanskir fjölmiðlar einnig fjallað um þau.

Kjartan Henry Finnbogason lýsti leiknum með honum. „Ég passa þig,“ sagði hann léttur.

Vilhjálmur Freyr Hallsson sló á létta strengi í setti Viaplay hér heima.

„Vonandi kemst Hörður heill heim. Annars sendum við íslenska Van Damme, Rúrik Gíslason, út að sækja hann,“ sagði hann, en Rúrik lenti í honum kröppum í Mílanó á dögunum. Þá réðist vopnaður maður að honum og heimtaði úr hans. Rúrik tókst hins vegar að losna við manninn.

„Hann krafðist þess að fá úrið og reyndi að ráðast á mig en ég náði að sjá um það. Farið í ræktina strákar,“ sagði Rúrik á Instagram á dögunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar

Mun ekki vinna með Kristian – Launakröfurnar alltof háar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni

Staðfestir að hann sé ekki hættur – Endurkoma á næstunni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða

Gætu neyðst til að selja vonarstjörnuna í sumar vegna fjárhagsvandræða