KR 1 – 1 Fram
0-1 Magnús Þórðarson (’45)
1-1 Ægir Jarl Jónasson (’48)
Það fór fram einn leikur í Bestu deild karla í kvöld en spilað var á Meistaravöllum er KR tók á móti Fram.
KR hefur ekki staðist væntingar í sumar og eftir jafntefli í kvöld hefur liðið aðeins unnið fjóra af fyrstu 13 leikjum sínum.
Magnús Þórðarson kom Fram yfir í leik kvöldsins áður en Ægir Jarl Jónasson jafnaði metin fyrir heimamenn.
KR er með 17 stig í sjöunda sæti deildarinnar, þremur stigum á undan Fram sem er í því áttunda.