Jack Grealish, leikmaður Manchester City, hefur notið sín ansi vel síðustu daga.
City varð Englandsmeistari um síðustu helgi og fagnaði Grealish manna mest.
Grealish, sem er þekktur vandræðagemsi, kom til City frá Aston Villa á 100 milljónir punda fyrir síðustu leiktíð og tókst honum ekki að standa undir væntingum á sinni fyrstu leiktíð. Það virðist þó ekki trufla leikmanninn mikið.
Grealish er nú staddur á Ibiza. Er hann í afar góðum gír eins og sjá má á myndunum hér neðar.
Englendingurinn er í góðra vina hópi á Ibiza en sjónvarpsstjarnan Chloe Chaloner er til að mynda á svæðinu.