Bayern Munchen vann nauman sigur á Augsburg í þýsku Bundesliga í dag.
Robert Lewandowski skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 82. mínútu.
Alfreð Finnbogason sat allan leikinn á varamannabekk Augsburg. Hann er að stíga upp úr meiðslum.
Bayern er á toppi deildarinnar með 69 stig. Augsburg er í því fjórtánda með 32 stig.