fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Sjáðu myndbandið: Reiður stuðningsmaður Benfica reyndi að meiða stjörnu Liverpool

Aron Guðmundsson
Miðvikudaginn 6. apríl 2022 09:32

Luiz Diaz er bekkjaður í dag / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool vann í gær mikilvægan 3-1 útisigur á portúgalska liðinu Benfica á útivelli þegar að liðin mættust í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Luis Diaz skoraði eitt marka Liverpool undir lok leiks og reiður stuðningsmaður Benfica reyndi að láta reiði sína bitna á honum.

Stuðningsmaðurinn hélt á járnstöng í hendi sér og kastaði henni í áttina að Diaz er hann fagnaði marki sínu. Stöngin hæfði sem betur fer ekki Diaz sem spilaði á sínum tíma með erkifjendum Benfica í Porto.

,,Þetta er ógeðsleg hegðun. Ég veit að hann hefur spilað fyrir Porto og þeir eru erkifjendur Benfica en stuðningsmenn eiga að vera betri en þetta,“ sagði Micah Richard, sérfræðingur í setti hjá CBS Sports þegar atvikið var sýnt í útsendingu í gær.

Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Slot staðfestir viðræður við Liverpool

Slot staðfestir viðræður við Liverpool
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“